Jeiiii það eru sko jól hjá okkur.... Loksins efti MIKIÐ erfiði eru
kassarnir komnir alla leið heim. Heiðar var búin að fara fýluferð
útá völl að reyna að sækja þá, við vorum búin að reyna að hringja í
fyrirtækið í 6 daga til að reyna að komast að því hvort þeir gætu
reddað bíl eða hvort maður yrði að gera það sjálfur. Svo vorum við
líka búin að tala við e-n bílagæja sem bara reifst og skammaðist
yfir því að við vissum ekki nákvæmlega hvenær hann ætti að koma
(vorum bara að spyrja um verð) Á endanum ákváðum við að fara bara
afturr niðureftir og sjá til hvað gerðist...
Við komum á staðinn m leigubíl, við erum að tala um það að þetta er
ekki á vellinum sjálfum heldur í hverfi þar við hliðina þar sem eru
bara svona fyrrtæki sem senda og geyma drasl. Við fórum á
skrifstofuna og biðum í smá stund. Svo sagði hún okkur að við værum
á vitlausum stað, við ættum að fara á næstu hæð. Við fórum þangað
og gæinn þar leitaði og leitaði af pappírunum og fann þá ekki. Hann
sendi okkur aftur niður og þá var þetta auðvitað þar.
Allavega....við áttum að borga 17.40 evrur fyrir affermun á dótinu
og ég rétti henni kortið. En neeeii þau voru ekki með posa??? Við
erum að tala um fyrirtæki þar sem fólk er að koma með fleiri
hundruð kíló til að senda og það kostar kannski 1000 evrur og þú
verður að borga cash??? Baaara asnalegt. Hún benti okkur þá á að
það væri hraðbanki í húsi þarna sem tók svona 10 mín að labba í.
Við fórum þangað náðum í pening og fórum til baka. Þá lét hún okkur
fá pappírana og sagði "já nú verðiði að fara aftur í þetta hús til
að fá custom stimpil...."
Ok við frekar pirruð.... og sögðum henni að okkur vantaði líka bíl.
Hún bara "HA??? Eruði ekkki með bíl...þetta eru 170 kíló, ætliði að
bera þau heim???" Þau gátu ekkert hjálpað okkur að finna bíl þannig
að við reyndum að hringja út um allt til að leita. Allir
bílstjórarnir sögðu það sama.....á morgun á morgun.... Þannig að
við fórum og fengum þennan blessaða stimpil, löbbuðum aftur í húsið
og þau sögðu okkur að við yrðum bara að koma aftur á morgun. Ég
skammaðist svolítið í þeim fyrir að gefa upp númer sem svaraði
aldrei í og þær skildu ekkert í þessu því að númerið væri opið
allan sólarhringinn.
En já þá var að koma sér heim....leigubílastöðin svaraði aldrei
(alltaf á tali...piiirrr) og það voru að sjálfsögðu engir
leigubílar á ráfi þarna. Við enduðumá því að þurfa að labba út á
flugvöll og taka bíl þaðan.... boooring.
Heiðar fór svo daginn eftir og fékk blessuðu kassana!!!! jeiiiiii
Annars er bara frí hjá okkur í dag og af því tilefni ætlaði fólk að
djamma í gær. NEma hvað ég og Keren ákváðum að byrja á að fara í
bíó. Sáum Devils wears Prada......ææææði ef maður er tískuaðdáandi
Svo skelltum við okkur á Pizza Hut sem er við hliðina á
bíóinu...tökum það fram að við vorum niðri á strönd. Heiðar hringdi
í okkur þar sem við sátum að snæðingi á terrözzunni í blíðunni. Þá
kom í ljós að það var komið brjálað veður heima, stormur og
eldingar og vesen... okkur fannst það nú frekar spes þar sem við
vorum ekkert voða langt frá og það var fínt hjá okkur. Reyndar sá
maður blossa en það er alveg eðlilegt á kvöldin án þess að það sé
slæmt veður. Hann sagði þá að hitt fólkið sem ætlaði að koma og
hitta okkur nennti ekki út í rigninguna þannig að við yrðum bara 2.
Svo skelli ég á og allt í einu bara BAAAMMMM......kom þvíííílík
vindhviða og eldingar og rigning...bara eins og það hefði verið ýtt
á takka til að kveikja....þjónarnir á stöðunum í kring hlupu um
eins og vitleysingar að reyna að bjarga borðum, stólum, sólhlífum
og diskum sem byrjuðu að fjúka og við hugsuðum með okkur að við
værum bara veðurtepptar á ""Línunni" (sem er röð af litlum
skemmtistöðum). Við skemmtum okkur vel þar og svo komu 3 af þeim
sem ætluðu upphaflega að koma og hittu okkur.
Svo þegar við fórum heim þá skelltum við okkur í leigubílaröð. við
vorum sumsé 5, ég Karen, Katla, Jói og Rikki. þurftum að taka 2
bíla og biðum bara voða róleg í röðinni.....nema hvað, byrjar ekki
að rigna aftur!!! Og við erum að tala um sturtu sko. Ég spurði
einmitt bara hvort e-r væri með sápu því þá þyrfti ég ekkert að
fara í sturtu heima!!! Haldiði svo ekki að herramennirnir Jói og
Rikki hafi tekið bílinn á undan okkur!!! isss... svo var fólk orðið
það blautt að leigubílarnir vildu ekki fá okkur í bílana....

Við
stóðum þarna, gegnblautar með graða Englendinga á bakinu sem fannst
við vera vooða sexý svona blautar og bölvuðum bílstjórunum....DE
PUTA MADRE!!!
En svo kom riddarinn á silfraða sportbílnum.....bauð okkur far sem
við þáðum með þökkum. Hann vildi ekki einu sinni borgun fyrir
Við enduðum öll heima hjá Kötlu og þeim og það sváfu sumsé 7 manns
þar þessa nótt
Gaman aððessu!!!!
Besitos
Margrét